Nýr frændi!

Við vorum svo heppin að eignast nýjan frænda í dag.  Nú er hann loksins kominn í heiminn og allir afar sælir með það.  Faðir hans var að rifna úr stolti þegar hann hringdi í okkur og líklega eru stóru bræður hans þeir Neil og Nonni ekki síður stoltir að ógleymdri móðurinni henni Elenore.  Við fengum sendar myndir af drengnum og sáum strax hve myndarlegur hann er.  Hlökkum til að kíkja á hann.   

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband