4.1.2007 | 22:16
Lumma ruglið!!
Hann Lummi -litli bróðir - þessi sem er þriggja barna faðir í vesturbænum er að fara að skíra yngsta soninn um helgina. Hann og konan hafa alltaf staðið fyrir stórum, góðum og eftirsóttum veislum. Nú er allt á útopnu fyrir helgina og litli bróðir í óða önn að skipuleggja hvað systur hans og móðir eigi að gera fyrir veisluna. Það er okkur öllum kappsmál að fá að hjálpa til og sýna hæfileika okkar við tertugerð. En eitthvað er sá litli að spila með okkur eða eitthvað farinn að rugla sérsviði hverrar fyrir sig því ekki er hann að biðja okkur um að gera það sem auðveldast er fyrir okkur að gera. Ég er t.d. beðin um að gera tertu sem ég veit ekki betur en að litla systir sé orðinn sérfræðingur í og ég löngu hætt að nenna......sérstaklega þegar ég hef litlu systur - sérfræðinginn- svona nálgægt mér. En þetta leysist nú allt því við konurnar komum réttum tertum á rétta sérfræðinga
Annað sem bróðir minn er ekki alveg með á hreinu ......ég er búin að vera að þvo skírnarkjólinn og er að fara að strauja hann!! Ég sem er freeeeekar löt að þvo - geri það bara í neyð - og straujárn í mínum höndum !!!! - en ég er ekkert stressuð - mamma er að koma til að taka völdin og hún þykist kunna á straujárn betur en flestir aðrir. Kjóllinn er allavega hreinn og fínn. Talaði við vinkonu mína sem er mikil húsmóðir, hefur verið í húsmæðraskóla ásamt því að hafa verið með í mörgum ferðum til framandi landa með örþreyttum húsmæðrum sem líklega gera lítið annað en tala um hvernig best er að meðhöndla þvott og bletti - en sem sagt þessi vinkona mín gaf mér góð ráð um hvernig ætti að þvo og meðhöndla skírnarskjóla ásamt hvernig best er að geyma hann næstu 50 ár!! En hún þekkir mig og róaði mig með að það sé líka gaman að sjá að kjóllinn er ekki nýr Hún er algjör perla.
Jæja nú eru allir strákarnir mínir steinsofnaðir og ég er að hugsa um að elta þá í draumalandið og undirbúa mig fyrir svala ferð í vinnuna á morgun en bölv.. miðstöðin á NÝJA bílnum mínum gaf upp öndina í morgun og ég hélt að rassinn myndi frjósa við bílsætið - en ég var heppin því ég var í fínu jólagjöfinni minni!! Ég á sitthvað ósagt við stóra bróður um bílinn sem hann seldi mér - það verður fjör um helgna þegar ég næ í hann gn
3.1.2007 | 18:35
þetta er bara frekar skemmtilegt
já það er bara orðið frekar gaman að blogga - þó að ekki sé mikið vit í þessu sem skrifað er. Nú er prinsinn steinsofnaður - hann fékk vinkonu sína í heimsókn og voru þau dugleg að leika sér saman en þegar þau settust niður við imbann þá sofnaði minn maður - ég náttúrulega í símanum - og vissi ekki fyrr en vinkona hans kom fram til að segja mér að hann væri sofnaður. Það var sama hvað mikið ég reyndi hann vaknaði ekki þannig að hann fær bara að sofa áfram - og ég vona að hann nái að sofa þar til á morgun. Hann hefur stundum gert þetta þ.e. sofnað MJÖG snemma og sofið í einni lotu þar til næsta dag. Ég tel að miklar vökur og skrítinn svefntími undanfarna daga hafi mikið að segja um ástandið á unga manninum núna. "Jólamaturinn" og óreglulegur svefn hefur ekki verið það besta fyrir hann.
Annað mál - hann Jakob litli frændi minn á afmæli í dag - og sendi ég honum okkar bestu afmæliskveðjur í tilefni dagsins - enda ekki á hverjum degi sem maður verður 7 ára. Honum hefur gengið vel í DK - ef íkveikju tilraunin á gamlársdag er ekki tekinn með í reikninginn. En mikið hlökkum við til í vor þegar þessi sólargeisli sem alltaf er glaður kemur aftur til landsins .....jú og foreldrar hans.
Gamla settið er að koma suður um helgina og skilst mér að það sé komið að mér að hýsa þau. Þau hafa skipt gistináttunum á milli okkar systranna - telja líklega að með því séu þau ekki að gera upp á milli okkar - en við systurnar sjáum þetta þannig að sem betur fer þurfum við ekki að hafa þau nema í annað hvert skipti sem þau koma suður .........nei nei - smá djók - þau eru alltaf velkomin til okkar beggja
Jæja - best að fara að finna sér eitthvað að narta í.
2.1.2007 | 17:40
Erfitt að vakna í dag!!
1.1.2007 | 12:19
1.janúar 2007
Gleðilegt nýtt ár - megi hamingjan elta ykkur á röndum þetta árið.
Gærkvöldinu eyddum við hjá vinkonu vina okkar - en það hefur verið siður undanfarin ár að eyða áramótunum saman - þrjár fjölskyldur með börn á aldrinum 3-18 ára. Held að öllum finnist þetta hið fínasta fyrirkomulag - helst að maður sakni þess að eiga ekki afgang af kvöldmatnum daginn eftir nema á 3ára fresti! Í þetta sinn vorum við hjá Hallgrímskirkju á miðnætti og var það upplifun að vera í aksjóninu - í fyrra vorum við í úthverfi R-víkur og á næsta verðum við líklega uppí sveit - en hvert gamlárskvöld hefur sinn sjarma á hverjum stað. Það var ótrúlega mikið af fólki hjá kirkjunni og aðallega útlendingar!! Líklega þessir umtöluðu ferðamenn sem eyða áramótunum á Íslandi. Allir með myndavélar og upplifun þeirra af flugeldunum var mikil. Ég skemmti mér vel þar til prik lenti rétt við fætur mínar - þá var gamanið búið og ég bjóst við priki í hausinn á hverri stundu. Prinsinn vildi ekki fara inn aftur því að sprengjurnar voru ekki búnar en þegar það hafðist að fá hann til að kveðja og setjast inní bíl þá var hann fljótur að hverfa inn í draumalandið og er þar enn - ásamt pabba sínum og stóra bróður. Sá stóri hélt áfram að sprengja fram eftir nóttu og var mér ekki farið að standa á sama þegar prikin fóru að lenda á húsunum í kring .........þar er nefnilega slatti af barnafólki sem var farið að sofa. Litli bróðir í danaveldi var að segja mér að sonur hans hafi næstum kveikt í húsinu hans morfar!! Drengurinn ætlaði ekki að drasla neitt til og sprengdi innibombu í ruslafötu - mikill reyklykt lagði húsið undir sig og allir hlupu út til að sjá hvort kveiknað væri í húsinu - en þá sást reykurinn út um gluggan á húsinu - allt fór vel - morfar bjargaði málunum og þau eiga enn í hús að venda úti í DK. Við systkinin ákváðum að leyfa drengjunum að eyða fljótlega áramótum á Akureyri hjá afa sínum því að sá kann líklega betur en flestir að hafa ofanaf svona srengjuglöðum einstaklingum - eftir áralanga æfingu með syni sína.
Við stoppuðum hjá tengdó á leiðinni heim í gær - karlinn var farinn að sofa en hún sat að leggja kapal - "tróð" í mig pönnsum með rjóma og gömlu kaffi. Minn betri helmingur vildi ekkert þóttist vera saddur - þegar hann svo settist útí bíl þá skaust talan úr sparibuxunum - líklega gefið sig vegna álags undanfarna daga!! Ég eyddi því góðum tíma í bílljósunum við að leyta að tölu - í svartri möl!! Fann slatta af flötum steinum á planinu áður en helv.... talan fannst.
Nýjársdagur rann upp kaldur og fagur í dag - yndislegt að vera í rólegheitunum að hlusta á útvarpið og hanga í tölvunni Fæ alltaf smá fiðring á þessum degi og langar til að hlaupa út með snjóþotu til að safna prikum og fallhlífum einsog í denn!! ......en.....læt það ekki eftir mér m.a. vegna þess að í fyrsta lagi þá er enginn snjór, ég á enga snjóþotu, og ég get ekki geymt "gullið" mitt undir rúminu mínu. Það væri nú samt saga til næsta bæjar (fyrir nágrannanna) að horfa uppá stútungskerlingu með snjóþotu og rakettuprik!!!
30.12.2006 | 22:31
Árið að líða
Við höfum haft það ákaflega gott núna síðustu dagana - lítið gert annað en að éta og slappa af þ.e. við mæðginin - stóri strákurinn og pabbi hans hafa verið á fullu að vinna bæði kvöld og helgar. Fórum í matarboð í gærkveldi - fylltar svínalundir og "alles" drukkum vel að rauðvíni með því ekkert áfengi verður -að venju- haft um hönd um áramótin. Okkur fannst það frekar fúllt í fyrsta skipti en svo er þetta bara alveg gjörsamlega að gera sig. Í gærkvöldi var systir gestgjafanns í mat með og hún dundaði sér við að senda sms allt kvöldið!! Við höfum líklega ekki þótt nógu skemmtileg! Þegar við vorum að kveðja bað ég um númerið hennar til að senda henni sms og þakka fyrir kvöldið - en við það rankaði hún við sér og kastaði kveðju á okkur :)
Við fáum kalkún annað kvöld og sjáum um eftirréttinn annað kvöldið (og árið) í röð - freeeekar góður svona "instant" réttur sem okkur líkar svo vel við.
Nabba og Co. stukku til "Agureyris" til að eyða áramótunum með þeim gömlu, ungu og eld-gömlu. Líklega mikið sprengt og étið í Oddagatinu þessi áramótin - einsog þau fyrri. Þau gömlu eru að koma suður eftir áramótin til að vera við skírn hjá nýjasta fjölskyldumeðlimnum sem dafnar víst ákaflega vel þannig að við nenntum eiginlega ekki að bruna með norður - vorum að gæla við það.
Steingleymdi að segja frá einni jólagjöfinni til mín frá henni Hallgerði Hando - haldið þið að hún hafi ekki prjónað þennan fína g-streng úr rauðri ull. Ég fæ ekki blöðrubólgu í vetur. pakkinn var skreyttur -að ég hélt - með hundabeinum.....en við nánari skoðun var þetta víst brjóstsykur í líki þess sem margir karlar kalla "djásnið sitt"!!
27.12.2006 | 17:51
Jólaboð hjá Nöbb og Co.
Við vorum svo heppin að hún Nabba frænka bauð öllum í kalkúninn í gærkvöldi - það var þriðji í kalkún þar á bæ - og þeim vantaði aðstoð - við reyndum okkar besta............en líklega er dagurinn í dag - fjórði í kalkún!! Í dag var svo farið í bæjarferð - heimilisfaðirinn bauð okkur í mat í hádeginu og við enduðum á pylsum :) Svo drifum við okkur í Smáralindina en þar var margt um manninn og flestir að skipta út gjöfunum sínum!! Á leiðinni heim komum stoppuðum við í bakaríinu og fengum okkur spelt brauð sem smakkaðist vel eftir allt átið hjá okkur um jólin -þaðan var brunað í Bónus til að versla "maltisín" sem var svo ekkert til þannig að við verðum að blanda eftir gamla laginu. það verður ekki erfitt eftir að við lærðum það rétt - við vitum nefnilega núna að þegar verið er að blanda á að gera það eftir stafrófsröð.
Vinkonan er í heimsókn hjá prinsinum í dag - og eftir að hafa kubbað mikið breyttist daman í hund en herrann í ljón - þannig að nú hef ég hlaupandi um allt hús eitt stykki af ljóni að elta lítinn hund. Merkilegt hvað hlutverkaleikirnir endast vel hjá þessum (næstum því alltaf) ágætu vinum.
25.12.2006 | 20:42
Letilíf um jólin
Það er mikið letilíf á fjölskyldunni núna yfir jólahátíðina. Við gerum helst ekki neitt nema borða, sofa og horfa á imbann. Aðfangadagur gekk afskaplega vel hjá litla guttanum - ekki mikið stress hjá honum og var hann til fyrirmyndar við að opna alla pakkana sem voru að streima að til að verða 18:00. Maturinn í ár var góður en við fengum okkur hátíðarlambalæri-létt reykt sem smakkaðist afar vel og mun gera næstu daga! Heimilisfaðirinn heldur alltaf að hann sé með marga í mat - telur líklegt að allir borði jafn mikið og hann sjálfur :) Fjölskyldan hélt til tengdó í dag - að venju á jóladag - og fengum súkkulaði og kökur sem smökkuðust freeeeekar vel.
Það birtust hér jólasveinar í gær sem gerðu mikla lukku - drengurinn fékk bók frá þeim sem hélt honum (og mömmu hans) uppteknum við lestur í gærdag.
Ég hélt ég væri í svaka stuði til að skrifa ..........en letin er enn að hrjá mig þannig að ég bið að heilsa í bili.
16.12.2006 | 12:42
Jólastressið
Nú um helgina er að koma nett jólastress í familíuna - það er nefnilega ekki enn búið að kaupa margar gjafir, né láta gera myndina sem á að fara í öll óskrifuðu jólakortin!! Þetta ætti samt að reddast ef dagurinn í dag verður rétt notaður. En þegar senda þarf gjafir um landið og út fyrir það og einnig jólakortin þá erum við kanski (að venju) aðeins of róleg.
Jólasveinarnir hafa undarleg áhrif á yngri soninn - ekki þarf nema að nefna orðið "kartafla" til að hann fari að hegða sér mun betur. Það á náttúrulega ekki að vera að hóta barninu ...........en þegar það virkar þá er það svo freistandi!!! Honum hlakkar mest til þegar "kertastjaki" kemur því hann kemur með jólin með sér.
Við ætlum að skoða litla frænda á morgun - búið að bjóða okkur í vöfflur og "alles" -ekki amalegt að fá sér hressingu eftir jólainnkaupin. Í kvöld erum við að passa aðra litla frændur meðan foreldrarnir skella sér í jólamat. Værum alveg til í að skipta við þau :)
Jæja þýðir ekki að sitja við tölvuna og skirfa blogg og kjafta á msn-inu - það flokkast líklega undir flótta frá jólastressinu!!
12.12.2006 | 14:10
Skórinn í gluggann.
10.12.2006 | 18:32