4.1.2007 | 22:16
Lumma ruglið!!
Hann Lummi -litli bróðir - þessi sem er þriggja barna faðir í vesturbænum er að fara að skíra yngsta soninn um helgina. Hann og konan hafa alltaf staðið fyrir stórum, góðum og eftirsóttum veislum. Nú er allt á útopnu fyrir helgina og litli bróðir í óða önn að skipuleggja hvað systur hans og móðir eigi að gera fyrir veisluna. Það er okkur öllum kappsmál að fá að hjálpa til og sýna hæfileika okkar við tertugerð. En eitthvað er sá litli að spila með okkur eða eitthvað farinn að rugla sérsviði hverrar fyrir sig því ekki er hann að biðja okkur um að gera það sem auðveldast er fyrir okkur að gera. Ég er t.d. beðin um að gera tertu sem ég veit ekki betur en að litla systir sé orðinn sérfræðingur í og ég löngu hætt að nenna......sérstaklega þegar ég hef litlu systur - sérfræðinginn- svona nálgægt mér. En þetta leysist nú allt því við konurnar komum réttum tertum á rétta sérfræðinga
Annað sem bróðir minn er ekki alveg með á hreinu ......ég er búin að vera að þvo skírnarkjólinn og er að fara að strauja hann!! Ég sem er freeeeekar löt að þvo - geri það bara í neyð - og straujárn í mínum höndum !!!! - en ég er ekkert stressuð - mamma er að koma til að taka völdin og hún þykist kunna á straujárn betur en flestir aðrir. Kjóllinn er allavega hreinn og fínn. Talaði við vinkonu mína sem er mikil húsmóðir, hefur verið í húsmæðraskóla ásamt því að hafa verið með í mörgum ferðum til framandi landa með örþreyttum húsmæðrum sem líklega gera lítið annað en tala um hvernig best er að meðhöndla þvott og bletti - en sem sagt þessi vinkona mín gaf mér góð ráð um hvernig ætti að þvo og meðhöndla skírnarskjóla ásamt hvernig best er að geyma hann næstu 50 ár!! En hún þekkir mig og róaði mig með að það sé líka gaman að sjá að kjóllinn er ekki nýr Hún er algjör perla.
Jæja nú eru allir strákarnir mínir steinsofnaðir og ég er að hugsa um að elta þá í draumalandið og undirbúa mig fyrir svala ferð í vinnuna á morgun en bölv.. miðstöðin á NÝJA bílnum mínum gaf upp öndina í morgun og ég hélt að rassinn myndi frjósa við bílsætið - en ég var heppin því ég var í fínu jólagjöfinni minni!! Ég á sitthvað ósagt við stóra bróður um bílinn sem hann seldi mér - það verður fjör um helgna þegar ég næ í hann gn
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.