3.1.2007 | 18:35
þetta er bara frekar skemmtilegt
já það er bara orðið frekar gaman að blogga - þó að ekki sé mikið vit í þessu sem skrifað er. Nú er prinsinn steinsofnaður - hann fékk vinkonu sína í heimsókn og voru þau dugleg að leika sér saman en þegar þau settust niður við imbann þá sofnaði minn maður - ég náttúrulega í símanum - og vissi ekki fyrr en vinkona hans kom fram til að segja mér að hann væri sofnaður. Það var sama hvað mikið ég reyndi hann vaknaði ekki þannig að hann fær bara að sofa áfram - og ég vona að hann nái að sofa þar til á morgun. Hann hefur stundum gert þetta þ.e. sofnað MJÖG snemma og sofið í einni lotu þar til næsta dag. Ég tel að miklar vökur og skrítinn svefntími undanfarna daga hafi mikið að segja um ástandið á unga manninum núna. "Jólamaturinn" og óreglulegur svefn hefur ekki verið það besta fyrir hann.
Annað mál - hann Jakob litli frændi minn á afmæli í dag - og sendi ég honum okkar bestu afmæliskveðjur í tilefni dagsins - enda ekki á hverjum degi sem maður verður 7 ára. Honum hefur gengið vel í DK - ef íkveikju tilraunin á gamlársdag er ekki tekinn með í reikninginn. En mikið hlökkum við til í vor þegar þessi sólargeisli sem alltaf er glaður kemur aftur til landsins .....jú og foreldrar hans.
Gamla settið er að koma suður um helgina og skilst mér að það sé komið að mér að hýsa þau. Þau hafa skipt gistináttunum á milli okkar systranna - telja líklega að með því séu þau ekki að gera upp á milli okkar - en við systurnar sjáum þetta þannig að sem betur fer þurfum við ekki að hafa þau nema í annað hvert skipti sem þau koma suður .........nei nei - smá djók - þau eru alltaf velkomin til okkar beggja
Jæja - best að fara að finna sér eitthvað að narta í.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Arna Jakobsdóttir (IP-tala skráð) 4.1.2007 kl. 21:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.