1.janúar 2007

Gleðilegt nýtt ár - megi hamingjan elta ykkur á röndum þetta árið.

Gærkvöldinu eyddum við hjá vinkonu vina okkar - en það hefur verið siður undanfarin ár að eyða áramótunum saman - þrjár fjölskyldur með börn á aldrinum 3-18 ára.  Held að öllum finnist þetta hið fínasta fyrirkomulag - helst að maður sakni þess að eiga ekki afgang af kvöldmatnum daginn eftir nema á 3ára fresti!  Í þetta sinn vorum við hjá Hallgrímskirkju á miðnætti og var það upplifun að vera í aksjóninu - í fyrra vorum við í úthverfi R-víkur og á næsta verðum við líklega uppí sveit - en hvert gamlárskvöld hefur sinn sjarma á hverjum stað.  Það var ótrúlega mikið af fólki hjá kirkjunni og aðallega útlendingar!!  Líklega þessir umtöluðu ferðamenn sem eyða áramótunum á Íslandi.  Allir með myndavélar og upplifun þeirra af flugeldunum var mikil.  Ég skemmti mér vel þar til prik lenti rétt við  fætur mínar - þá var gamanið búið og ég bjóst við priki í hausinn á hverri stundu.  Prinsinn vildi ekki fara inn aftur því að sprengjurnar voru ekki búnar en þegar það hafðist að fá hann til að kveðja og setjast inní bíl þá var hann fljótur að hverfa inn í draumalandið og er þar enn - ásamt pabba sínum og stóra bróður.  Sá stóri hélt áfram að sprengja fram eftir nóttu og var mér ekki farið að standa á sama þegar prikin fóru að lenda á húsunum í kring .........þar er nefnilega slatti af barnafólki sem var farið að sofa.  Litli bróðir í danaveldi var að segja mér að sonur hans hafi næstum kveikt í húsinu hans morfar!!  Drengurinn ætlaði ekki að drasla neitt til og sprengdi innibombu í ruslafötu - mikill reyklykt lagði húsið undir sig og allir hlupu út til að sjá hvort kveiknað væri í húsinu - en þá sást reykurinn út um gluggan á húsinu  - allt fór vel - morfar bjargaði málunum og þau eiga enn í hús að venda úti í DK.  Við systkinin ákváðum að leyfa drengjunum að eyða fljótlega áramótum á Akureyri hjá afa sínum því að sá kann líklega betur en flestir að hafa ofanaf svona srengjuglöðum einstaklingum - eftir áralanga æfingu með syni sína.

 

Við stoppuðum hjá tengdó á leiðinni heim í gær - karlinn var farinn að sofa en hún sat að leggja kapal - "tróð" í mig pönnsum með rjóma og gömlu kaffi.  Minn betri helmingur vildi ekkert þóttist vera saddur - þegar hann svo settist útí bíl þá skaust talan úr sparibuxunum - líklega gefið sig vegna álags undanfarna daga!!  Ég eyddi því góðum tíma í bílljósunum við að leyta að tölu - í svartri möl!!  Fann slatta af flötum steinum á planinu áður en helv.... talan fannst.

Nýjársdagur rann upp kaldur og fagur í dag - yndislegt að vera í rólegheitunum að hlusta á útvarpið og hanga í tölvunni Tounge  Fæ alltaf smá fiðring á þessum degi og langar til að hlaupa út með snjóþotu til að safna prikum og fallhlífum einsog í denn!!  ......en.....læt það ekki eftir mér m.a. vegna þess að í fyrsta lagi þá er enginn snjór, ég á enga snjóþotu, og ég get ekki geymt "gullið" mitt undir rúminu mínu.  Það væri nú samt saga til næsta bæjar (fyrir nágrannanna) að horfa uppá stútungskerlingu með snjóþotu og rakettuprik!!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband