Árið að líða

Við höfum haft það ákaflega gott núna síðustu dagana - lítið gert annað en að éta og slappa af þ.e. við mæðginin - stóri strákurinn og pabbi hans hafa verið á fullu að vinna bæði kvöld og helgar.  Fórum í matarboð í gærkveldi - fylltar svínalundir og "alles" drukkum vel að rauðvíni með því ekkert áfengi verður -að venju- haft um hönd um áramótin.  Okkur fannst það frekar fúllt í fyrsta skipti en svo er þetta bara alveg gjörsamlega að gera sig.  Í gærkvöldi var systir gestgjafanns í mat með og hún dundaði sér við að senda sms allt kvöldið!!  Við höfum líklega ekki þótt nógu skemmtileg!  Þegar við vorum að kveðja bað ég um númerið hennar til að senda henni sms og þakka fyrir kvöldið - en við það rankaði hún við sér og kastaði kveðju á okkur :)

Við fáum kalkún annað kvöld og sjáum um eftirréttinn annað kvöldið (og árið) í röð - freeeekar góður svona "instant" réttur sem okkur líkar svo vel við.  

Nabba og Co. stukku til "Agureyris" til að eyða áramótunum með þeim gömlu, ungu og eld-gömlu.  Líklega mikið sprengt og étið í Oddagatinu þessi áramótin - einsog þau fyrri.  Þau gömlu eru að koma suður eftir áramótin til að vera við skírn hjá nýjasta fjölskyldumeðlimnum sem dafnar víst ákaflega vel þannig að við nenntum eiginlega ekki að bruna með norður - vorum að gæla við það.

Steingleymdi að segja frá einni jólagjöfinni til mín frá henni Hallgerði Hando - haldið þið að hún hafi ekki prjónað þennan fína g-streng úr rauðri ull.  Ég fæ ekki blöðrubólgu í vetur.  pakkinn var skreyttur -að ég hélt - með hundabeinum.....en við nánari skoðun var þetta víst brjóstsykur í líki þess sem margir karlar kalla "djásnið sitt"!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband