Letilíf um jólin

Það er mikið letilíf á fjölskyldunni núna yfir jólahátíðina.  Við gerum helst ekki neitt nema borða, sofa og horfa á imbann.  Aðfangadagur gekk afskaplega vel hjá litla guttanum - ekki mikið stress hjá honum og var hann til fyrirmyndar við að opna alla pakkana sem voru að streima að til að verða 18:00.  Maturinn í ár var góður en við fengum okkur hátíðarlambalæri-létt reykt sem smakkaðist afar vel og mun gera næstu daga!  Heimilisfaðirinn heldur alltaf að hann sé með marga í mat - telur líklegt að allir borði jafn mikið og hann sjálfur :)  Fjölskyldan hélt til tengdó í dag - að venju á jóladag - og fengum súkkulaði og kökur sem smökkuðust freeeeekar vel. 

Það birtust hér jólasveinar í gær sem gerðu mikla lukku - drengurinn fékk bók frá þeim sem hélt honum (og mömmu hans) uppteknum við lestur í gærdag. 

Ég hélt ég væri í svaka stuði til að skrifa ..........en letin er enn að hrjá mig þannig að ég bið að heilsa í bili.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband