Jólastressið

Nú um helgina er að koma nett jólastress í familíuna - það er nefnilega ekki enn búið að kaupa margar gjafir, né láta gera myndina sem á að fara í öll óskrifuðu jólakortin!!  Þetta ætti samt að reddast ef dagurinn í dag verður rétt notaður.  En þegar senda þarf gjafir um landið og út fyrir það og einnig jólakortin þá erum við kanski (að venju) aðeins of róleg. 

Jólasveinarnir hafa undarleg áhrif á yngri soninn - ekki þarf nema að nefna orðið "kartafla" til að hann fari að hegða sér mun betur.  Það á náttúrulega ekki að vera að hóta barninu ...........en þegar það virkar þá er það svo freistandi!!! Honum hlakkar mest til þegar "kertastjaki" kemur því hann kemur með jólin með sér.

Við ætlum að skoða litla frænda á morgun - búið að bjóða okkur í vöfflur og "alles" -ekki amalegt að fá sér hressingu eftir jólainnkaupin.  Í kvöld erum við að passa aðra litla frændur meðan foreldrarnir skella sér í jólamat.  Værum alveg til í að skipta við þau :)

Jæja þýðir ekki að sitja við tölvuna og skirfa blogg og kjafta á msn-inu - það flokkast líklega undir flótta frá jólastressinu!! 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband