Skórinn í gluggann.

Við vorum nærri búin að gleyma því í gærkvöldi að hann Stekkjastaur væri væntanlegur - sem betur fer gleymdist það ekki.  Skórinn fór útí glugga -hetjan hafði samt ekki þor til að setja hann sjálfur þannig að mamma var fengin til þess.  Allur er varinn góður, jólasveinninn gæti verið á ferðinni!!  Í skóinn fékk hann svo þessa fínu bók um hann Barbapabba en sú bók hefur oft verið fengin að láni á bókasafninu og helst mátti ekki skila henni - þannig að nú eru svoleiðis uppákomur úr sögunni.  Mikið hefur hann Stekkjastaur verið naskur á unga manninn!!  Þar sem hetjan treystir jólasveinum ekkert of vel var talsvert vandamál að velja skó í gluggann.  En svo fann hann gamlan gúmmískó sem hann sættist á að nota.  "Það er nefnilega allt í lagi að jólasveinnin steli þeim skó"!!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband