10.12.2006 | 18:32
Jólaball
Doddinn fór í dag á jólaball Securita og skemmti sér konunglega, fékk pakka og nammi og náði að komast passlega nálægt jólasveinunum. Maður passar sig á að fara ekki of nærri. Í gær hitti hann líka jólasvein þegar hann fór að ná í jólatré með leikskólanum sínum. Brekkan í skóginum sem var lögð svelli var þó meira spennandi en karlinn í rauðu fötunum. Og ekki var verra að ef hann renndi sér alla leiðina niður þá endaði hann í læknum!! Eftir skógarferðina fór hann í heimsókn til vinar síns, svo í kaffiboð til Einars og Villu og sátu foreldrar hans þar langt fram eftir kvöldi - að venju!! Það var því farið seint að sofa og sofið lengi í dag. Fyrir jólaballið aðstoðaði hann föður sinn við að undirbúa eldhúsgluggana fyrir málun - meira er ekki á dagskránni að gera í húsinu fyrir jól. Erum farin að þekkja okkar mörk :)
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.