15.8.2007 | 18:49
Komin í bæinn :)
Jæja þá erum við búin að vísitera "Agureyris". Eyddum þar góðum dögum í íbúðinni sem Kóngurinn á þar. Veðurguðirnir voru reyndar ekki mikið að leika við okkur en það var bara allt i lagi því við fórum ekki til að hitta þá! Við enduðum dvölina á fjölskyldumóti á þeim stað sem í daglegu tali er nefnt Hraunið - vorum sem sagt á Hrauninu.......ekki því litla þó!! Tjöldin ætluðu að fjúka en þar sem ættingjar okkar eru rammir mjög að afli þá tókst að bjarga þeim - það var skondin sjón að sjá fólkið ganga með 4 samsett tjöld yfir háft túnið í var hjá bústaðnum - ég náttúrulega stóð bara og tók myndir af þessu meðan unnustinn hámaði í sig ís úr sveitinni!!! Við erum ekkert mikið til að hlaupa til án þess að athuga málið vel og leeeeeengi.
Litli prinsinn er í essinu sínu eftir allt þetta frí -hann hefur reyndar verið að mæta á leikskólann þessa vikuna til að fara í gítartíma - og það gengur bara þokkalega hjá honum hann er búinn að læra tvö grip og spilað ein fjögur lög!! Mamma hans var svo hrifin af þessu hjá honum að ég dreif fram gítarinn minn úr ruslakompunni sem á að vera herbergi eldri sonarins - mikið varð nú húsbóndinn glaður þegar ég gekk með gripinn inn í stofu - hann bjóst við að heyra undurfagra tónlist en ...........því miður fékk hann ekkert að heyra því að frúina (ég!) gleymdi að nú um stundir er gítarinn minn bara fimm strengja!!!
Nú styttist í að sumarfríinu ljúki - og skólinn byrji - það er skrítin hugsun að setjast á skólabekk - og ekki varð kvíðinn minni þegar vinkona mín benti mér á að það væri best fyrir mig að áætla c.a. 2 tíma á dag í heimanám!! Ég ætlaði eiginlega ekki að eyða svo miklum tíma í þetta - en ég hugsa nú að ég taki hana mér til fyrirmyndar og eyði SMÁ tíma í námið.
Nú er bóndinn að kaupa hillur í vaskahúsið - ég er eitthvað að tapa mér yfir kaosinu þar inni - líklega má henda meira en helmingnum sem þar er ........en ........ég bara get ekki hent neinu!! Þetta er ættgengur and..... ég þekki ekki neitt annað en að fólk sitji sem lengst á "gullinu" sínu. Jæja - kanski ég haldi áfram með heimilisstörfin - á bara eftir að endurskipuleggja vaskahúsið, laga til í eldhúsinu, setja í vél, hengja upp, ryksuga, elda mat, bera á pallinn og vökva blómin - og ég segi það enn og aftur - það er GOTT að eiga ekki sjónvarp
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.