Helgin okkar

Um helgina hefur verið nóg að gera hjá húsbóndanum hann hefur verið að laga til í bílskúrnum og farið ófáar ferðirnar í Sorpu.  Mikið var ég ánægð að sjá hve grinkaði mikið í skúrnum.  Sá að þá yrði mun auðveldara að vinna við breytingarnar á eldhúsin sem standa fyrir dyrum hjá okkur fyrir .....jól.......ekkert svo sem nánar ákveðið hvaða jól það verða!!!  Það er samt betra að fá eitthvað á "fyrir jól planið" heldur en á 15 ára áætlunina!!  Jæja aftur að bílskúrnum - þegar loksins varð nógu rúmt til að ganga um gólf dreif húsbóndinn sig af stað í bæinn til að ná í enn eitt mótorhjólið og alls konar varahluti!!  þannig að nú er (að mínu mati) bílskúrinn orðinn troðfullur!  Ef við hefðum ekki keypt þessa fínu ljósakrónu í dag til að setja yfir borðstofuborðið þá hefði líklega fokið í mig - en reyndar er ég frekar umburðarlind gagnvart gullunum hans í bílskúrnum Halo   Ef krónan verður ekki komin upp fyrir "jól" þá getur verið að ég muni verða pirruð, jafnvel FREKAR pirruð - en alla vega ekki alveg strax.  

Við skoðuðum hundasýningu í dag í Blómavali - hlökkuðum mikið til EN svo voru þetta eiginlega bara litlir hundar - sem við fórum EKKI til að skoða - hámarkið var ísinn í Blómavali sem kostaði bara nokkrar krónur.  Ekki samt alveg hámarkið hjá yngri prinsinum þar sem hann hafði ætlað að kaupa sér ís með dýfu - en það var samt hægt að tala hann til - að venju. 

Jæja, nú er að skella sér í draumalandið - sá litli löngu kominn þangað - sá í miðið á leiðinni en sá elsti ......hann......er......ENN ÚTÍ SKÚRRRRR!?!?!?!   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband