13.2.2007 | 18:01
Mamma á afmæli í dag!
Mamma mín á afmæli í dag - mamma sem á okkar heimili er betur þekkt sem "amma Lilla klifurmús" hefur haldið í næstum heilt ár að hún sé ári eldri en hún er!! Þvílíkur bömmer þegar hún fattaði það því hún var farin að telja niður til ellilaunanna og sér fram á að þurfa að bíða árinu lengur!! Mikið væri gott ef allir væru svona rólegir yfir aldrinum. Það var bara allt fínt að frétta af gamla settinu þarna norðan heiða - ég var að segja henni að hún ætti von á smá pakka í kvöld þegar hún minnti mig á að ég væri nú þegar búin að gefa henni gjöf!! .......ég sleppi því bara afmælisgjöfinni á næsta ári - ef ég man.
Litli prinsinn var alveg þversum þegar ég sótti hann á leikskólann og var ekki alveg á því að fara beint heim - en eftir að hafa fengið að róla aðeins þá var skapið orðið betra - orsök geðvonskunnar kom í ljós þegar við vorum komin heim því hann lagðist uppí sófa og sofnaði - alveg búinn eftir daginn. Hann hafði verið mikið úti í dag og klessti víst á tré því hann var allur rispaður í framan - nefið og hakan. Hann hafði nú samt þá skýringu að sólin hefði rispað hann!!
Nú er eldri sonurinn loksins búinn að laga til í herberginu og allt orðið frekar fínt þar - en mikið var nú erfit fyrir hann að laga til. Hann varð samt alsæll þegar það var búið og hélt uppá það með því að fara í sturtu .........var kanski bara svona sveittur eftir átökin.
Litla systir talar ekki um annað en hann Snorra sinn þessa dagana hún er svo ánægð með hann - þvílík sæla að eiga hann - bara algjör bömmer að hann rennur út eftir 30 daga - en hún er að vinna í því á fullu að fjármagna Snorra sinn svo þau verði óaðskiljanleg um alla framtíð - alla vega meðan hún er í KHÍ. Ég fékk eina með mér til hennar til að kynnast honum Snorra og mikið varð hún ánægð með hann - langar núna mest til að eignast sinn eigin Snorra. Skil bara ekkert í því að hann sé ekki meira á ferðinni eða betur kynntur - hefur alla vega alveg farið fram hjá mér. Það að setja upp í tölvuna sína forrit sem les upphátt það sem þú skrifar og les einnig texta sem er valinn er náttúrulega bara hrein snilld fyrir lesblint fólk. Heather er víst líka góð en hún les allt á ensku fyrir hana.
Jæja -nú er komið að því að sinna prinsinum sem er vaknaður af værum dúr.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.